Samfélagsmiðlar

Átak í hreinsun á fjörum við utanverðan Eyjafjörð

Arctic Adventures verður einn af aðalstyrktaraðilum Fiskidagarins mikla á Dalvík og mun um leið leggja taka þátt í hreinsunarátaki á svæðinu.

Fiskidagurinn mikli á Dalvík og Arctic Adventures undirrituðu nýverið samning um að ferðaþjónustfyrirtækið verði einn af aðalstyrktaraðilum fjölskylduhátíðarinnar sem haldin er í bæjarfélaginu ár hvert. Af þessu tilefni var kynnt sérstak átak í hreinsun á fjörum við utanverðan Eyjafjörð í tengslum við hátíðina. Arctic Adventures mun útvega báta og búnað til að fara upp í fjörur og hreinsa þar til en áformað er að hreinsunin fari fram fimmtudaginn 8. ágúst samkvæmt því sem segir í tilkynningu.

Þar kemur jafnframt fram að ruslið og það sem finnst við strendurnar mun verða til sýnis á laugardeginum eða sjálfum Fiskideginum mikla til að vekja fólk til umhugsunar og til að sýna hvað það er sem finnst í fjörutiltekt. „Mikil vakning hefur orðið fyrir mikilvægi þess að hreinsa hafið og strandlengjur landsins. Við utanverðan Eyjafjörð eru margar fjörur illfærar og þar mun verkefnið að mestu fara fram. Fiskidagurinn Mikli og Arctic Adventures munu síðar auglýsa eftir fólki til að taka þátt.“

Í tilkynningu er haft eftir Júlíusi Júlíussyni, frá Fiskideginum mikla, að hann sé himinlifandi yfir að fá Arctic Adventures inn í hóp aðalstyrktaraðila hátíðarinnar. Fyrirtækið sé með sterka umhverfisvitund sem sé í takt við aukna áherslur aðstandenda hátíðarinnar á umhverfismál.

„Við erum mjög stolt af að verða einn aðalstyrktaraðili fjölskylduhátíðarinnar Fiskidagsins mikla nú á 10 ára afmæli hvalaskoðunar Arctic Adventures á Dalvík. Það hefur verið mikil vitundarvakning í hreinsun hafsins og strandlengju Íslands og við viljum leggja okkar að mörkum og nýta bátakost okkar til að fara á þau svæði sem erfitt er að hreinsa” segir Freyr Antonsson hjá Arctic Adventures. Nýverið greindi fyrirtækið frá því að það hefði skuldbundið sig til að kolefnisjafna nærri helming af útblæstri fyrirtækisins í fyrra með því að gróðursetja um 10 þúsund tré.

 

 

Nýtt efni

Ég hitti dræverinn minn við terminalinn í Keflavík. Hann var að koma úr transferi  frá Selfossi. Ég spurði  hvort hann væri á Sprinternum, „Nei ég er á nýja Benzinum  hjá  Ice-eitthvað. En hvað eigum við að taka marga pax spurði hann og eru allir með vácera eða eiga þeir að borga kontant?“  Daman á deskinum …

Nú eru 10 þotur á vegum Play í háloftunum en þær voru sex fyrir ári síðan. Umsvifin hafa því aukist  um meira en helming og í nýliðnum nóvember flutti félagið 107 þúsund farþega. Það er viðbót um 42 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðbótin er minni en sem nemur auknu framboði og sætanýtingin var …

Rebecca Yarros er sex barna móðir. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast Ehlers-Danlos og hún á erfitt með svefn. Í mörg ár hefur hún vaknað um miðjar nætur og legið andvaka tímunum saman. Á hinum svefnlausu nóttum vandi hún sig á að setjast upp og lesa svokallaðar ástarsögur eða romance á fræðimáli bókaútgefenda. Þegar …

Vefmiðillinn Túristi hóf sitt ferðalag fyrir 14 árum en í dag birtist hann lesendum undir nýju nafni og í breyttum búningi, sem ekki er þó fullskapaður heldur í mótun: FF7 - Frásagnir og fréttir alla daga. Áfram verða ferðamál í öndvegi en leitað fanga víðar, birtar áhugaverðar og skemmtilegar frásagnir af ýmsu tagi og fréttir …

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Aðlögunarhæfni er meðal helstu styrkleika ferðaþjónustunnar. Það sýndi hún vel í kórónaveirufaraldrinum og það á örugglega eftir að reyna á þennan eiginleika aftur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, kom inn á þetta í ávarpi sínu á morgunfundi SAF og SA um skattspor ferðaþjónustunnar. Ekki er langt síðan Þórdís Kolbrún gegndi starfi utanríkisráðherra og …

Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur, kynnti niðurstöður skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir SAF um skattspor ferðaþjónustunnar - um það hvert raunverulegt framlag hennar er til samfélagsins. Byggt er á tölum frá 2022 og er meginniðurstaðan sú að skattspor ferðaþjónustunnar hafi verið rúmir 92 milljarðar króna en rúmir 155 milljarðar ef virðisaukaskattur er meðtalinn. Þetta eru …

Þessar breytingar á álögum á skemmtiferðaskipin sem koma til Grænlands taka gildi 1. janúar 2024. Við gerð fjárlaga síðasta árs náðist samkomulag milli flokkanna á grænlenska þinginu um að hefja að nýju innheimtu farþegagjalda. Hafnargjald var látið leysa farþegagjald af hólmi árið 2015. Vegna fjölgunar skemmtiferðaskipa og álagsins sem fylgir komum þeirra fyrir lítil samfélög …

norwegian vetur

„Umferðin í nóvember er alla jafna minni og líka í janúar og febrúar. Þú hefur þá um tvennt að velja. Fljúga með óbreyttum hætti, lækka verðið og fljúga hálftómum þotum. Hinn kosturinn er að minnka framboðið og spara pening. Áður fyrr valdi Norwegian fyrri leiðina en nýir stjórnendur hafa kosið seinni kostinn," sagði Svein Harald …