Samfélagsmiðlar

Ósamræmi í farmiðaverði systurfélaganna

Sá sem ætlar að ferðast frá Seattle til Ísafjarðar borgar minna fyrir farið ef hann bókar allt hjá Icelandair. Hins vegar tapar Þjóðverji á því að gera slíkt og sama má segja um þann sem ætlar frá Egilsstöðum til Svíþjóðar. Akureyringur á leið til Amsterdam gæti hins vegar fengið farið fyrir minna með því að bóka allt á einu bretti.

Það getur munað töluverðu á fargjöldunum út í heim eftir því hvort innanlandsflugið er keypt með alþjóðafluginu eða ekki. Jafnvel þó um sé að ræða sömu flugferðir.

Það var tilkynnt í lok síðasta vetrar að samþætta ætti rekstur systurfélaganna Air Iceland Connect og Icelandair. Níu mánuðum síðar er ennþá unnið að því að samræma bókunarkerfi félaganna tveggja og ekki er vanþörf á. Því samkvæmt athugun Túrista getur munað miklu á verði farmiða sem bókaðir eru annars vegar inn á vef Icelandair og hins vegar Air Iceland Connect. Jafnvel þó um sé að ræða nákvæmlega sömu flugferðirnar.

Þannig þarf sá sem ætlar frá Egilsstöðum til Stokkhólms, 2. til 9.júlí, að borga 101.790 krónur fyrir flugmiða alla leið ef bókað á vef Icelandair. Viðkomandi verður þó að koma sér sjálfur milli Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar.

Ef farþeginn bókar hins vegar innanlandsflugið hjá Air Iceland Connect og millilandaflugið hjá Icelandair þá kostar allt ferðalagið næstum 29 þúsund krónum minna.

Þessu er svo öfugt farið ef Akureyringur ætlar til Amsterdam í byrjun júní. Þá er ódýrara að kaupa alla fjóra flugleggina hjá Icelandair. Þar kostar þeir 72.440 en 80.605 krónur ef bókað er í sitthvoru lagi.

Bandaríkjamaður sem ætlar frá Seattle til Ísafjarðar sparar sér svo um sjö þúsund krónur með því að bóka farmiða alla leið á vef Icelandair.

Hins vegar borgar það sig ekki fyrir Þjóðverjann sem stefnir á að fljúga frá Frankfurt til Akureyrar að bóka allt á einu bretti hjá Icelandair. Sá endar með að borga 16 þúsund krónum meira en ef hann hann pantar innanlandsflugið sérstaklega hjá Air Iceland Connect.

Þess ber að geta að í öllum þessum dæmum hér að ofan er um að ræða farmiða með farangursheimild.

Nýtt efni

Þegar blaðamaður gengur inn á Dill á Laugavegi 59 um miðjan dag í miðri viku er starfsfólkið að undirbúa kvöldið, útbúa ýmislegt fyrirfram sem fylgir 18 rétta matseðli kvöldsins. Það kostar vinnu og hæfileika að tryggja að gestir njóti þeirrar upplifunar sem þeir vænta með því að bóka borð löngu fyrirfram á þessum íslenska Michelin-stað.  …

„Íbúar þessa lands búa í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á meðan ferðafólk gistir í íbúðarhúsnæði,“ sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í óundirbúinni fyrirspurn á Alþingi í gær. Þar gagnrýndi hún þær reglur sem settar voru í tíð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur í ráðuneyti ferðamála árið 2018. Sagði Kristrún reglurnar gera fyrirtækjum, með fjölda íbúða í skammtímaleigu til …

Ég hitti dræverinn minn við terminalinn í Keflavík. Hann var að koma úr transferi  frá Selfossi. Ég spurði  hvort hann væri á Sprinternum, „Nei ég er á nýja Benzinum  hjá  Ice-eitthvað. En hvað eigum við að taka marga pax spurði hann og eru allir með vácera eða eiga þeir að borga kontant?“  Daman á deskinum …

Nú eru 10 þotur á vegum Play í háloftunum en þær voru sex fyrir ári síðan. Umsvifin hafa því aukist  um meira en helming og í nýliðnum nóvember flutti félagið 107 þúsund farþega. Það er viðbót um 42 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðbótin er minni en sem nemur auknu framboði og sætanýtingin var …

Rebecca Yarros er sex barna móðir. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast Ehlers-Danlos og hún á erfitt með svefn. Í mörg ár hefur hún vaknað um miðjar nætur og legið andvaka tímunum saman. Á hinum svefnlausu nóttum vandi hún sig á að setjast upp og lesa svokallaðar ástarsögur eða romance á fræðimáli bókaútgefenda. Þegar …

Vefmiðillinn Túristi hóf sitt ferðalag fyrir 14 árum en í dag birtist hann lesendum undir nýju nafni og í breyttum búningi, sem ekki er þó fullskapaður heldur í mótun: FF7 - Frásagnir og fréttir alla daga. Áfram verða ferðamál í öndvegi en leitað fanga víðar, birtar áhugaverðar og skemmtilegar frásagnir af ýmsu tagi og fréttir …

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Aðlögunarhæfni er meðal helstu styrkleika ferðaþjónustunnar. Það sýndi hún vel í kórónaveirufaraldrinum og það á örugglega eftir að reyna á þennan eiginleika aftur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, kom inn á þetta í ávarpi sínu á morgunfundi SAF og SA um skattspor ferðaþjónustunnar. Ekki er langt síðan Þórdís Kolbrún gegndi starfi utanríkisráðherra og …

Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur, kynnti niðurstöður skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir SAF um skattspor ferðaþjónustunnar - um það hvert raunverulegt framlag hennar er til samfélagsins. Byggt er á tölum frá 2022 og er meginniðurstaðan sú að skattspor ferðaþjónustunnar hafi verið rúmir 92 milljarðar króna en rúmir 155 milljarðar ef virðisaukaskattur er meðtalinn. Þetta eru …