Samfélagsmiðlar

Erlend kortavelta í verslunum Icewear meiri en fyrir heimsfaraldur

Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Icewear, segir að fyrirtækið hafi notið góðs af því undanfarið eitt og hálft ár að Íslendingar hafi ekki ferðast mikið til útlanda. Þeir hafi því verslað í meira mæli hér heima.

„Það skipti algjörlega sköpum fyrir reksturinn að landið var opnað núna í vor eftir frostið allan síðasta vetur. Sala til ferðafólks var eðlilega engin í vetur en varð strax lífleg í júní og hefur verið mjög góð fram til dagsins í dag,“ segir Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Icewear, aðspurður um gang mála nú í sumar.

Fyrirtækið rekur sautján verslanir þar sem meðal annars útivistarfatnaður og ullarvara er á boðstólum auk minjagripa og gjafavöru. Og til marks um jákvæða þróun hjá Icewear undanfarna mánuði þá var kortavelta erlendra ferðamanna í verslunum fyrirtækisins í ágúst meiri en í sama mánuði árið 2019. Aðalsteinn bendir þó á að verslanirnar séu fleiri í dag en þær voru sumarið 2019 en á móti komi að sala til farþega skemmtiferðaskipa sé nær engin.

Þegar horft er á allan markaðinn þá lækkaði kortavelta erlenda ferðamanna í minja- og gjafavöruverslunum í ágúst sl. um nærri helming frá ágúst 2019 samkvæmt tölum Rannsóknarseturs verslunarinnar. Í fataverslunum nam lækkunin um tíund á sama tímabili. Þróunin hjá Icewear á annan veg sem fyrr segir.

Asískir ferðamenn hér á landi hafa almennt verið kaupglaðir en ennþá liggja ferðalög milli Asíu og Evrópu niðri og það munar um það að sögn Aðalsteins.

„Það er mikið högg fyrir rekstur á ferðamannamarkaði að missa allt ferðafólkið frá Asíu, annað árið í röð. En sem betur fer þá hafa ýmsar aðrar þjóðir aukið komur sínar á sama tíma. Ísraelar voru óvænt en ánægjuleg viðbót í verslunum Icewear í sumar. Það er líka áberandi mikil aukning hjá Tékkum en Bandaríkjamenn eru samt uppistaðan og kortavelta þeirra jókst mjög frá árinu 2019. Hlutfall þeirra af heildarkortaveltu hefur aldrei verið hærra en í ár. Aðrar þjóðir voru á svipuðum reki og fyrri ár en þó var veltan eitthvað minni hjá Þjóðverjum, Bretum og hinum Norðurlandaþjóðunum.“

Aðalsteinn segir þó að kauphegðunin hafi breyst í sumar frá því sem var, þeir sem komi versli fyrir hærri upphæðir.

„Fólk ferðast á bílaleigubílum, gistir á hótelum og öll veitingahús eru fullbókuð. Þannig að mynstrið er eitthvað að breytast eins og við kannski vorum að vonast eftir þannig að vonandi heldur þetta áfram að þróast í þessa átt.“

Nýtt efni

Þegar blaðamaður gengur inn á Dill á Laugavegi 59 um miðjan dag í miðri viku er starfsfólkið að undirbúa kvöldið, útbúa ýmislegt fyrirfram sem fylgir 18 rétta matseðli kvöldsins. Það kostar vinnu og hæfileika að tryggja að gestir njóti þeirrar upplifunar sem þeir vænta með því að bóka borð löngu fyrirfram á þessum íslenska Michelin-stað.  …

„Íbúar þessa lands búa í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á meðan ferðafólk gistir í íbúðarhúsnæði,“ sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í óundirbúinni fyrirspurn á Alþingi í gær. Þar gagnrýndi hún þær reglur sem settar voru í tíð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur í ráðuneyti ferðamála árið 2018. Sagði Kristrún reglurnar gera fyrirtækjum, með fjölda íbúða í skammtímaleigu til …

Ég hitti dræverinn minn við terminalinn í Keflavík. Hann var að koma úr transferi  frá Selfossi. Ég spurði  hvort hann væri á Sprinternum, „Nei ég er á nýja Benzinum  hjá  Ice-eitthvað. En hvað eigum við að taka marga pax spurði hann og eru allir með vácera eða eiga þeir að borga kontant?“  Daman á deskinum …

Nú eru 10 þotur á vegum Play í háloftunum en þær voru sex fyrir ári síðan. Umsvifin hafa því aukist  um meira en helming og í nýliðnum nóvember flutti félagið 107 þúsund farþega. Það er viðbót um 42 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðbótin er minni en sem nemur auknu framboði og sætanýtingin var …

Rebecca Yarros er sex barna móðir. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast Ehlers-Danlos og hún á erfitt með svefn. Í mörg ár hefur hún vaknað um miðjar nætur og legið andvaka tímunum saman. Á hinum svefnlausu nóttum vandi hún sig á að setjast upp og lesa svokallaðar ástarsögur eða romance á fræðimáli bókaútgefenda. Þegar …

Vefmiðillinn Túristi hóf sitt ferðalag fyrir 14 árum en í dag birtist hann lesendum undir nýju nafni og í breyttum búningi, sem ekki er þó fullskapaður heldur í mótun: FF7 - Frásagnir og fréttir alla daga. Áfram verða ferðamál í öndvegi en leitað fanga víðar, birtar áhugaverðar og skemmtilegar frásagnir af ýmsu tagi og fréttir …

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Aðlögunarhæfni er meðal helstu styrkleika ferðaþjónustunnar. Það sýndi hún vel í kórónaveirufaraldrinum og það á örugglega eftir að reyna á þennan eiginleika aftur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, kom inn á þetta í ávarpi sínu á morgunfundi SAF og SA um skattspor ferðaþjónustunnar. Ekki er langt síðan Þórdís Kolbrún gegndi starfi utanríkisráðherra og …

Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur, kynnti niðurstöður skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir SAF um skattspor ferðaþjónustunnar - um það hvert raunverulegt framlag hennar er til samfélagsins. Byggt er á tölum frá 2022 og er meginniðurstaðan sú að skattspor ferðaþjónustunnar hafi verið rúmir 92 milljarðar króna en rúmir 155 milljarðar ef virðisaukaskattur er meðtalinn. Þetta eru …