Samfélagsmiðlar

Tengifarþegar vega í fyrsta sinn þyngra hjá Play en Icelandair

Play flutti 75 þúsund farþega í nóvember og að jafnaði voru 8 af hverju 10 sætum skipuð farþegum. Í ferðum félagsins til London, Parísar og Tenerife var sætanýtingin ennþá hærri eða 90 prósent að því segir í tilkynningu sem fylgir mánaðarlegum flutningatölum félagsins.

Stjórnendur Play hafa hingað til ekki gefið upp í þessum tölum hvernig farþegahópurinn skiptist eftir Íslendingum, erlendum ferðamönnum og tengifarþegum. Hlutfall síðastnefnda hópsins er þó hægt að reikna út með hliðsjón af farþegatölum Isavia og Icelandair og það hefur Túristi notfært sér í greinum sínum.

Play birti hins vegar þessa skiptingu fyrir nýliðinn nóvember og þar segir að hlutfall tengifarþega hafi verið 39 prósent. Svo hátt hefur það ekki áður verið eins og sjá má hér fyrir neðan og þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem hlutfall tengifarþega er hærra hjá Play en Icelandair.

Í því samhengi má rifja upp að hátt hlutfall tengifarþega í ágúst sl. var nefnt sem ein af ástæðum þess að tekjuspá Play á þriðja ársfjórðungi stóðst ekki. Var þá vísað til þess að tekjur af þessum farþegahópi væru lægri en til að mynda af erlendum ferðamönnum á leið til Íslands á þeim árstíma. Öðru máli gegnir um vetrarmánuðina segir Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play, í svari til Túrista.

„Þróunin hvað varðar farþega til landsins er áfram góð. Tengifarþegar skipta okkur hins vegar miklu máli á veturna en eins og við sögðum á dögunum viljum við sjá meiri farþega til landsins fyrir vor og sumar 2023. Svo skiptir það mjög miklu máli fyrir okkur núna að hafa svo góða sætanýtingu þegar hliðartekjurnar eru að aukast en það var annað sem við bentum á að hafi skort á þriðja ársfjórðungi.“

Í tilkynningu Play segir að 98 prósent ferða félagsins í nóvember hafi verið á réttum tíma og áfram er félagi því stundvísari en helsti keppinauturinn, Icelandair. Því félagi fór fram í nóvember og þá voru um 9 af hverjum 10 ferðum á réttum tíma.

Nýtt efni

Það er mat Standard & Poor's að Grikkland hafi loks bundið enda á skulda- og bankakreppuna sem reið yfir landið fyrir 15 árum síðan. Hin gríska skuldakreppa gekk nærri evrusamstarfinu á sínum tíma en úr var að Grikkland fékk 50 milljarða króna lán úr stöðugleikasjóði Evrópusambandsins. Sú upphæð fór í einskonar gríska bankasýslu sem lagði …

Umtalsverður samdráttur hefur orðið í vínútflutningi Nýsjálendinga að undanförnu. Verð hefur lækkað og minna selst á mikilvægustu markaðssvæðum. Áhugi á nýsjálenskum vínum náði hámarki um mitt árið 2023 en leiðin hefur legið niður á við síðustu mánuði, eins og tölur frá uppgjörsárinu sem lauk í júní sýna glögglega. Verðmæti nýsjálenskra vína minnkaði um 12,2% frá …

Stjórnendur Play gera ekki ráð fyrir að fjölga þotunum í flotanum á næsta ári en það er engu að síður þörf á nýjum flugmönnum. Play hefur því auglýst til umsóknar lausar stöður flugmanna og rennur fresturinn til að sækja um út í byrjun desember. Ekki liggur fyrir hversu margir verða ráðnir samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu. …

Nýr forsætisráðherra Frakklands, Michel Barnier, er ekki sáttur við stöðu innflytjendamála í landinu og vill herða tökin. Endurspeglar hann þar stöðugt háværari umræðu í landinu um fjölda innflytjenda. Meginþunginn í stefnuræðu Barnier á þinginu fyrr í vikunni var á stöðu efnahagsmála, hvernig stöðva þyrfti skuldasöfnun, skera niður útgjöld og hækka skatta. En hann ræddi líka …

Í lok október þyngist flugumferðin milli Íslands og Bretlands enda fjölmenna Bretar hingað til lands yfir vetrarmánuðina. Breska flugfélagið Easyjet hefur verið stórtækast í flugi milli landanna tveggja á þessum árstíma en félagið hefur nú skorið niður áætlunina þónokkuð frá síðasta vetri. Til viðbótar við þennan niðurskurð á Keflavíkurflugvelli þá hefur Wizz Air fellt niður …

Toyota Motor hefur ákveðið að fresta framleiðslu rafbíla í Bandaríkjunum vegna þess að dregið hefur úr eftirspurn. Viðskiptavefur Nikkei greinir frá því að framleiðslan hefjist ekki fyrr en á fyrri hluta árs 2026. Framleiðandinn á að hafa greint birgjum nýverið frá því að það drægist að hefja smíði fyrsta rafbílsins, þriggja sætaraða sportjeppa, í verksmiðju …

Hið konunglega hollenska flugfélag, KLM, boðar aðgerðir til að ná niður kostnaði til að vega upp á móti almennum verðlagshækkunum. Í tilkynningu segir að þetta hafi í för með sér samdrátt í fjárfestingum, einfaldara skipulag, aukna kröfu um framleiðni og almennar sparnaðaraðgerðir. „Flugvélarnar okkar eru fullar en framboðið er enn þá minna en það var …

Á miklum óvissutímum fyrir botni Miðjarðarhafs vegna stríðsátaka, sem hafa mikil áhrif á flugsamgöngur, tilkynnir bandaríska flugfélagið Delta Air Lines um samstarf við Saudia Airlines, þjóðarflugfélag Sádi-Arabíu. Markmiðið er að fjölga ferðamöguleikum á milli Bandaríkjanna og Miðausturlanda. Um er að ræða samkomulag (codeshare agreement) um að deila áætlunum og útgefnum flugmiðum. Viðskiptavinir geta þá framvegis …