Árið 2018 einkenndist af kapphlaupi Icelandair og Wow Air um Bandaríkin enda bættu félögin tvö þá við óvenju mörgum áfangastöðum vestanhafs. Þessi sókn endaði illa því leiðakerfi Icelandair fór í uppnám og forstjóri Icelandair sagði starfi sínu lausu í ágúst 2018. Sjö mánuðum síðar var Wow Air farið á hausinn en þá höfðu stjórnendur þess rennt að vinda ofan af mistökum ársins á undan, meðal annars með því að fækka áfangastöðum.
Þessi útrás íslensku flugfélaganna í Bandaríkjunum varð þó til þess að hingað komu fleiri bandarískir ferðamenn en áður. Þótti þá mörgum hlutfall bandarískra túrista hér á landi orðið hátt en nú er það komið ennþá hærra.
Í nýliðnum júní stóðu Bandaríkjamenn nefnilega undir 43 prósent af ferðamannastraumnum en hlutfallið var 40 prósent árið 2018.