Flugfélagið Play hefur ráðið Emilio Chacon Monsant sem yfirmann hliðartekna en um er að ræða nýja stöðu. Emilio kemur frá flugfélaginu Wizz Air en hann var áður yfirmaður hliðartekna hjá Ryanair en hefur einnig starfað hjá Vueling, Avianca og Aero Mexico.
Í tilkynningu frá Play segir að hliðartekjur hafa verið í örum vexti undanfarin misseri og ráðning Emilio sé mikilvægt skref í átt að því að auka þær enn frekar.
Dæmi um hliðartekjur í flugrekstri eru þau gjöld sem farþegar greiða fyrir farangur, val á sætum og veitingar í háloftunum.
„Það er mikill fengur fyrir okkur að hafa fengið Emilio til liðs við Play. Með honum fylgir gríðarleg reynsla í flugiðnaðinum sem mun nýtast okkur í þeirri vegferð að auka hliðartekjur sem eru afar mikilvægur liður í afkomu félagsins,“ segir Sonja Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Play.
„Ég er mjög spenntur að ganga til liðs við Play á þessum tímapunkti í sögu þessa unga flugfélags. Play hefur stækkað hratt undanfarin tvö ár en er nú komið með frábærar undirstöður til að færa sig á næsta stig,” segir Emilio.