Fagfólk í ferðamennsku á Norðurlandi kom saman í Mývatnssveit á fimmtudaginn og þá voru árlegar viðurkenningar Markaðsstofu Norðurlands veittar. Í flokknum Fyrirtæki ársins varð Gauksmýri í Húnaþingi vestra fyrir valinu sen sú viðurkenningin er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. „Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi,“ segir í tilkynningu.
Bjórböðin, Áskógssandi, eru Sproti ársins fyrir að hafa skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Þá fékk Ólöf Hallgrímsdóttir í Vogafjósi, Mývatnssveit, viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2017/10/markadsstofanordurlands_1-450x300.jpg.webp)
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2017/10/markadsstofanordurlands2-450x300.jpg.webp)