Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði FF7 – Frásagnir og fréttir alla daga, skv. 24. grein laga um fjölmiðla nr.38/2011:
1.gr .
FF7 – Frásagnir og fréttir alla daga er sjálfstæður fréttamiðill, óháður félögum, fyrirtækjum og hagsmunaöflum. Ákvarðanir um efnisval, ritstjórnarlegar áherslur og framsetningu eru teknar af ritstjórn án tillits til tekjuöflunar.
2.gr .
Blaðamenn og aðrir sem skrifa í FF7 – Frásagnir og fréttir alla daga virða meginreglur lýðræðissamfélagsins, eru sjálfstæðir í störfum sínum og hafa kröfu um sanngirni, nákvæmni og vandvirkni að leiðarljósi.
3. gr.
Ritstjórn fylgir siðareglum Blaðamannafélags Íslands. Ritstjórar bera ábyrgð á efni sem birt er.
4.gr .
Fylgt er skilyrðum um áminningu og uppsögn starfsmanns á ritstjórn samkvæmt ákvæðum í kjarasamningi viðkomandi og gildandi lögum á hverjum tíma.