Samfélagsmiðlar

Icelease keypti þoturnar þrjár af Icelandair

TF-FIS var innréttuð sérstaklega til að fljúga farþegum National Geographic um heiminn. Henni verður nú breytt í fraktvél.


Það fengust nærri þrír milljarðar króna fyrir þær þrjár Boeing 757-200 farþegaþotur sem Icelandair tilkynnti um sölu á í gærkvöld. Bókfært verð þotanna var á bilinu tveimur til þremur milljónum dollurum lægra samkvæmt því sem fram kom í tilkynningu. Það jafngildir um 280 til 415 milljónum króna.

Það var Icelease, íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í flugvélaviðskiptum, sem gekk frá kaupum á vélunum fyrir hönd fjárfestingasjóðs í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í svari Icelandair við fyrirspurn Túrista. Icelease var áður dótturfélag Icelandair Group.

Þotunum verður öllum breytt í fraktflugvélar en ein þeirra er TF-FIS sem var sérstaklega innréttuð í hittifyrra fyrir heimsreisur á vegum ferðaskrifstofunnar National Geographic.

Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, gerði þriggja ára samning við ferðaskrifstofuna og fyrsta brottför á síðasta ári. Ein önnur þota á vegum Icelandair var einnig útbúin fyrir verkefnið.

Hinar tvær þoturnar sem seldar voru úr flota Icelandair eru TF-FIT og TF-LLX. Sú fyrrnefna hefur ekki verið nýtt í áætlunarflug síðan í febrúar. TF-LLX er aftur á móti ein af þeim þotum sem Icelandair hefur notað hvað mest þessa dagana í farþegaflug.

Í tilkynningu Icelandair í gærkvöld er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra fyrirtækisins, að sala þotanna sé jákvætt skref fyrir félagið á þeim tíma þegar flugrekstur er í lágmarki. Að hans mati sýnir þetta líka að mikil verðmæti felist í Boeing 757 vélum félagsins eftir áralanga þjónustu við félagið.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …