Samfélagsmiðlar

Meirihlutinn flaug með Norwegian og WOW til Tenerife

WOW air var stórtækast í flugi héðan til Tenerife en þegar félagið féll hóf Norwegian að fljúga hingað frá spænsku eyjunni. Norska félagið náði enn hærri hlutdeild á markaðnum en WOW air hafði. Nú ætlar Icelandair að spreyta sig á áætlunarflugi til eyjunnar.

Frá sundlaugarbakka á Tenerife.

Síðustu tvo vetur hafa rétt um sautján þúsund farþegar flogið frá Keflavíkurflugvelli til Tenerife. Rúmlega helmingur þessa hóps sat um borð hjá WOW air þarsíðasta vetur og í fyrra náði Norwegian ennþá hærri hlutdeild eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan. Bæði félög buðu upp á flug á eigin vegum til spænsku eyjunnar.

Ferðir Icelandair til Tenerife hafa aftur á móti takmarkast við leiguflug fyrir ferðaskrifstofur. Nú ætlar flugfélagið að spreyta sig á áætlunarferðum til Tenerife en samt sem áður muna alla vega þrjár ferðaskrifstofur kaupa sæti af Icelandair.

Þannig gerir Úrval-Útsýn ráð fyrir að fljúga sínum viðskiptavinum til Tenerife með flugfélaginu. Það ætlar líka Vita, sem tilheyrir Icelandair samsteypunni að gera, og einnig Aventura, sem er í eigu Andra Más Ingólfssonar.

Heimsferðir, sem Arion banki rekur, verða með eigin ferðir en ennþá liggur ekki fyrir hvað verður um útgerð Norwegian.

Ef norska félagið kemur ekki inn á markaðinn á ný þá skilur það eftir sig stórt skarð. Síðastliðinn vetur flutti félagið nefnilega 10.404 farþega frá Keflavíkurflugvelli til Tenerife. Það jafngildir sextíu prósent hlutdeild sem er aðeins meira en WOW air hafði veturinn á undan.

Þá nýttu 9.894 farþegar sér ferðir WOW air og hlutdeild félagsins var þá 57 prósent eins og sjá má hér fyrir neðan.

Þess má geta að upphaflega áform Play gerðu ráð fyrir flugi til Tenerife en stjórnendur þess ekki gefið út neina flugáætlun fyrir komandi ár.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …