Samfélagsmiðlar

Sætisframboðið minna á öðrum fjórðungi en spáð var

Nú þegar árið er hálfnað hefur sætisframboðið hjá Icelandair numið um fimmtungi af því sem reiknað er með fyrir allt árið.

Í tengslum við hlutafjárútboð Icelandair í september í fyrra var birt spá sérfræðinga félagsins um umsvifin næstu ársfjórðunga. Þar var gert ráð fyrir að framboðið í alþjóðaflugi yrði að jafnaði 313 milljónir sætiskílómetra (ASK) á mánuði á öðrum fjórðungi þessa árs.

Raunin varð önnur því framboðið í apríl, maí og júní var að meðaltali 232 milljónir sætiskílómetrar.

Í samanburði við annan ársfjórðung árið 2019 þá nam niðursveiflan 85 prósentum. Hún hefði verið 80 prósent ef fyrrnefnd spá hefði gengið eftir. Skekkjan fyrir fyrsta fjórðung þessa árs var minni eða tvö prósentustig.

Svokölluð grunnsviðsmynd stjórnenda Icelandair, fyrir allt árið 2021, byggir á að framboðið nemi í heildina fimm milljörðum sætiskílómetra. Nú þegar árið er hálfnað nemur framboðið tæplega níu hundruð milljónum sætiskílómetra. Til að ná því markmiði ársins þarf framboðið á seinni hluta ársins að vera að jafnaði helmingi meira í hverjum mánuði fyrir sig en það var í nýliðnum júní.

Hafa má í huga að þrátt fyrir færri farþega þá hefur Icelandair að undanförnu notað breiðþotur á fjölda flugleiða til að auka umsvifin í fraktflugi. Af þeim sökum verður sætanýtingin lakari en hún hefði þurft að vera og sætaframboðið á sama hátt meira en þörf var fyrir.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …