Samfélagsmiðlar

Byrjuðu viðræður við umboðin fyrr en áður

Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri Hertz.

Þrátt fyrir fækkun ferðamanna þá hækkuðu kortatekjur bílaleiganna í ágúst um rúmlega hálfan milljarð króna. Það eru því vísbendingar um að hærra hlutfall ferðamanna hafi kosið að ferðast í bílaleigubíl um landið en áður. Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri Hertz, á hins vegar von á því að rútur verði valkostur fyrir fleiri næsta sumar.

Hér svarar Sigfús nokkrum spurningum Túrista um horfurnar fyrir veturinn og næsta sumar.

Hvernig lítur veturinn út?
Útlitið fyrir veturinn er bara nokkuð gott. Núna berum við okkur yfirleitt saman við árið 2019 og bókanir eru töluvert fleiri en á sama tíma og þá. Bandaríkjamenn eru sterkastir og við finnum núna mikinn áhuga frá Evrópubúum. Mest frá Bretlandi og Írlandi, Ítalíu og Skandinavíu. Við erum auðvitað komnir inn í veturinn. Þetta er því enginn fjöldi en áhuginn er greinilega þarna.

Eru bókanir að berast með lengri fyrirvara en áður?
Í okkar starfsemi hefur bókunarfyrirvari alltaf verið að styttast og hefur aldrei verið styttri en nú. En við finnum fyrir bókunum frá ferðaheildsölum fyrir næsta ár og teljum að viðskiptavinir þeirra vilji hafa vaðið fyrir neðan sig og bóka snemma til að fá þá þjónustu sem óskað er eftir.

Stefnir í álíka skort á bílaleigubílum næsta sumar eins og á nýliðinni sumarvertíð?

Þetta er stór spurning. Hvað munu koma margir ferðamenn til landsins á næsta ári? Margir segja tvöfalt fleiri en á þessu ári, það gera þá ca. 1 til 1,3 milljónir ferðamanna. Væntanlega munu þeir ferðast meira í rútum en þeir gerðu í faraldrinum. Við stefnum að því að auka flota okkar í skammtímalegu um ca. 20 til 25 prósent. Einn stór þáttur í þessu er framboð af bílum frá framleiðendum. Við höfum aldrei byrjað jafn snemma að ræða við bílaumboðin, sem við verslum við, um bílakaup fyrir næsta ár. Þeir segja flestir að verð á bílum muni hækka töluvert og að framleiðendur muni ekki hafa nóg af bílum fyrir bílaleigur.

Hefur hlutfall rafbíla aukist í flotanum?
Hlutfall okkar í rafbílum er alltaf að aukast. Eftirspurn eftir rafbílum til leigu er mest á innanlandsmarkaði, einstaklingar og fyrirtæki hvort sem í skammtíleigu eða langtímaleigu. Fjórðungur af flota okkar í dag er ýmist 100% rafmagn, plug-in eða hybrid. Rafmagnsíbílar eru mjög hentugir en það þarf rafmagn, hleðslustöðvar og drægni. Þetta mun koma hægt en sígandi þegar innviður hafa verið byggðir upp.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …