Eftir milljarða viðskipta síðustu mánuði eiga bandarískir fjárfestingasjóðir nú samtals 21 prósent hlut í Icelandair og hefur gengi hlutabréfa félagsins hækkað um nærri fjórðung það sem af er ári.
Í ársbyrjun var markaðsvirði félagsins rétt um 66 milljarðar króna en stendur nú í 82 milljörðum. Hækkunin nemur tæpum 16 milljörðum króna.
Til samanburðar er markaðsvirði Play í dag rétt um 11,4 milljarðar króna en gengi hlutabréfa í flugfélaginu í dag er nánast það sama og það var í ársbyrjun. Hækkunin nemur 1,5 prósenti. Munurinn á markaðsvirði keppinautanna tveggja er ríflega sjöfaldur eins og staðan er í dag.
Hástökkvari vikunnar í flokki norrænna flugfélaga var hins vegar Norwegian því gengi hlutabréfa í því félagið hækkaði um 12 prósent og í íslenskum krónum talið er virði félagsins 124 milljarðar króna. Ekkert annað norrænt flugfélag er eins mikils virði eins og sjá má hér fyrir neðan.