Samfélagsmiðlar

Skila hagnaði á ný

Þota United á Newark flugvellinum við New York.

Rekstur bandaríska flugfélagsins United Airlines var réttum megin við núllið í fyrra en eins og gefur að skilja var tapið gríðarlegt árin tvö á undan enda olli Covid-19 félaginu miklum skaða. Hagnaðurinn árið 2022 nam 737 milljónum bandaríkjadollara em jafngildir 105 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar skilaði félagið fjórfalt meiri hagnaði árið 2019.

Síðustu þrír mánuðirnir í fyrra komu þó betur út en sama tímabil árið 2019, bæði voru tekjurnar meiri og hagnaðurinn sömuleiðis. Og fjórði fjórðungur síðasta árs fór líka fram úr væntingum stjórnenda Delta flugfélagsins og voru tekjurnar 17 prósent hærri en þær voru þremur árum áður. Hagnaður Delta í fyrra nam 1,1 milljarði dollara eða 157 milljörðum króna miðað við gengi dagsins.

Bæði United og Delta fljúga hingað til lands og gerir dagskrá þess síðarnefnda ráð fyrir daglegum ferðum frá bæði New York og Minneapolis og fjórum brottförum í viku frá Detroit. Þotur United munu fljúga til Keflavíkurflugvallar frá bæði New York og Chicago, alla daga frá sumarbyrjun og fram á haust.

Og árið sem nú er nýhafið gæti orðið flugfélögum hagfellt gangi spár eftir. Þannig gerir nýtt mat flugvélaleigunnar Avolon, sem er ein sú stærsta í heimi, ráð fyrir að fluggeirinn hagnist um nærri 5 milljarða dollara í ár en til samanburðar töpuðu flugfélög heimsins samtals 180 milljörðum dollara árin 2020 og 2021.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …