Maria Anastasia Isabella Reichardt og Sigrún Huld Guðmundsdóttir hafa báðar starfað sem flugmenn hjá Play í rúmt ár en voru núverið hækkaðar í tign og gerðar að flugstjórum. Þær eru þar með fyrstu kvenflugstjórar flugfélagsins.
Í tilkynningu frá Play segir að Maria og Sigrún hafi fengið stöðuhækkunin aðdraganda alþjóðadags flugmanna sem er 26. apríl. Dagurinn er ætlaður til að vekja athygli á framlagi flugmanna sem flytja milljónir farþega með öruggum hætti á milli áfangastaða á hverju ári.
Þotunum í flota Play fjölgar nú úr sex í tíu og verða starfsmenn félagsins nú í sumar um 500 talsins.