Aflýsa þarf tugum flugferða til og frá Gatwick flugvelli í London næstu daga vegna veikinda meðal flugumferðastjóra. Um 30 prósent þeirra þurfa að halda sig heima næstu daga og er fjöldi þeirra með Covid samkvæmt frétt The Independent.
Vegna stöðunnar verður umferðin um flugvöllinn takmörkuð við 800 flugferðir á sólarhring sem þýðir að aflýsa þarf nokkrum tugum flugferða á dag út vikuna.
Af heimasíðu Keflavíkurflugvallar að dæma þá hefur þetta ástand í London ekki komið á flugi héðan til Gatwick. Ferðir Icelandair þangað í dag og á morgun eru á áætlun og það sama má segja um flug Easyjet hingað á morgun frá Lundúnarflugvellinum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn nú í lok sumarvertíðar sem takmarka þarf umferðina um Gatwick vegna veikinda flugumferðastjóra því það hefur verið gert tvisvar sinnum áður. Þá voru veikindin hins vegar ekki eins útbreidd og nú.