Samfélagsmiðlar

Markaðssetning á millilandaflugi til Akureyrar mun leggjast af

Arnheiður Jóhannsdóttir

„Það er mikil vinna eftir til að tryggja áframhald á þessum verkefnum og ekki hægt að vinna að því án fjármagns," segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Flugklasans Air 66N og Markaðstofu Norðurlands.

Flugklasinn Air 66N, sem rekinn er af Markaðsstofu Norðurlands, hefur það verkefni að efla millilandaflug um Akureyrarflugvöll. Klasinn var stofnaður fyrir 12 árum síðan en nú er útlit fyrir að starfsemin stöðvist um áramótin þar sem sveitarfélög á Norðurlandi, þar á meðal Akureyrarbær, ætla að láta af fjárhagsstuðningi við verkefnið.

Akureyrarbær hefur veitt 9 milljónum króna á ári í verkefnið og önnur sveitarfélög samtals 5 milljónum. Mótframlag Menningar- og viðskiptaráðuneytisins nemur 20 milljónum kr. og 15 milljónir koma úr Flugþróunarsjóði. Flugklasinn því fengið 49 milljónir króna til rekstursins árlega. 

Beint millilandaflug frá Akureyri yfir vetrarmánuðina mun aukast í vetur með komu Easyjet. MYND: Markaðsstofa Norðurlands

„Það eru mikil vonbrigði að Akureyrarbær og fleiri sveitarfélög á Norðurlandi skuli taka þá ákvörðun nú að hætta stuðningi við starf Flugklasans Air 66N og þar með lýkur vinnu við að ná inn beinu flugi um Akureyrarflugvöll um áramótin. Árangur hefur náðst reglulega fá árinu 2018 þegar fyrsta leiguflug Superbreak frá Bretlandi kom hingað beint. Síðan þá hafa bæst við Voigt Travel, Kontigi, Edelweiss og það nýjasta flug tvisvar í viku með easyJet frá London Gatwick. Það er mikil vinna eftir til að tryggja áframhald á þessum verkefnum og ekki hægt að vinna að því án fjármagns. Uppbygging á beinu flugi hefur lengi verið stefna landshlutans og unnið að því markmiði í breiðu samstarfi. Áhrifin af beinu flugi eru vel sýnileg og skila tekjum inn á svæðið, auknum fjárfestingum, nýjum heils árs störfum, öflugri þjónustu, lengri opnunartíma fyrirtækja og nýrri afþreyingu svo eitthvað sé nefnt,” segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Flugklasans Air 66N og Markaðstofu Norðurlands, í svari til Túrista um stöðuna. 

Með lokun Flugklasans verður stöðugildi eins starfsmanna lagt niður frá áramótum og samstarfi við Austurbrú, um vinnu að beinu flugi á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll, verður hætt. Einnig verður samstarfi við þær erlend flugfélög og ferðaskrifstofur um flug til Akureyrar hætt.

Í lok þessa mánaðar hefst áætlunarflug Easyjet frá London til Akureyrar og verður þetta í fyrsta sinn sem erlent flugfélag heldur úti hefðbundnu áætlunarflugi til Akureyrar yfir vetrarmánuðina. Hingað til hefur millilandaflugið þaðan verið á vegum ferðaskrifstofa. 

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …