Það eru sífellt fleiri á ferðinni með heyrnatól í eyrunum og nú þegar jólatónlist fer að hljóma í verslunum þá ætti notkunin aukist töluvert. Hér á landi leita margir í snjallforrit sænsku hljóðveitanna Spotify og Storytel þegar lækka á í umhverfinu en þessi tvö fyrirtæki hafa sérhæft sig á ólíkum hlutum hljóðmarkaðarins. Það fyrrnefnda fókusar á tónlist og hlaðvörp á meðan hitt býður upp á bókalestur.
Það hefur hins vegar legið fyrir að Spotify ætlar sér stærri skerf af hljóðheiminum og í vikunni setti félagið í loftið upplestur á 150 þúsund bókum. Til samanburðar eru 1,4 milljónir titla í bókasafni Storytel.
Munurinn er því mikill en engu að síður hrapaði gengi hlutabréfa í Storytel í kauphöllinni í Stokkhólmi þegar Spotify kynnti fyrrnefnda nýjung á miðvikudaginn var. Lækkunin nam 18 prósentum og þar með hafa bréfin fallið um 41 prósent í ár en gengi hlutabréfa í Spotify hefur aftur á móti tvöfaldast.
Sókn Spotify inn á bókamarkaðinn er þó ólíklega til höfuðs Storytel heldur miklu frekar Amazon eins og fram kemur í umfjöllun Svenska dagbladet. Amazon er nefnilega með sterka stöðu í hljóðheiminum vestanhafs og þá helst í gegnum bókalestur Audible. Stjórnendur Spotify ætli nú að láta Amazon risann finna fyrir sér.