Icelandair og Play borguðu samanlagt 48 milljarða króna fyrir eldsneyti á þotur sínar fyrstu níu mánuði ársins. Selja þarf hátt í 2 milljónir farmiða fyrir 25.000 krónur stykkið til að hafa upp í þennan reikning.
Þessi kostnaðarliður vegur það þungt í rekstri flugfélaganna að bæði sendu frá sér tilkynningu í september þar sem fjárfestar voru varaðir við versnandi afkomu vegna verðhækkana á olíu.
Stjórnendur flugfélaganna anda þó vafalítið léttar þessa dagana þegar þeir fylgjast með olíuverðinu því síðastliðinn mánuð hefur það farið niður um 15 af hundraði. Nú í morgunsárið fór fat á Norðursjávarolíu niður í 77 dollara og leita aftur í júlí til að finna álíka lágt verð.