Opnað var fyrir útboð fyrir fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli á fyrra hluta þessa árs og sendu þrjú fyrirtæki inn lokatilboð. ChangeGroup og Forex sem bæði sérhæfa sig í rekstri afgreiðslustaða á flugvöllum og lestarstöðvum og svo Arion banki sem sinnt hefur þessari þjónustu í Leifsstöð frá árinu 2016. Áður sá Landsbankinn um þessi mál þar á bæ.
Hagkvæmasta tilboðið kom frá ChangeGroup og snýr fyrirtækið þá aftur á Keflavíkurflugvöll í byrjun febrúar á næsta ári en það var þar með samskonar rekstur á tíunda áratug síðustu aldar. Útboðið náði til næstu fimm ára.