Landsbankinn og Play hafa rift samningi sínum um að bankinn sinni viðskiptavakt með hlutabréf flugfélagsins. Tilgangurinn með þess háttar samkomulagi er meðal annars að efla viðskipti með hlutabréf hins skráða félagsins, í þessu tilviki Play.
Í tilkynningu frá Play segir að uppsögnin gildi frá lokum þessarar vinnuviku en ekki kemur fram hver ástæðan er fyrir þessari breytingu.
Gengi hlutabréf í Play hefur fallið um 30 prósent frá því að föstudagsmorgun þegar uppgjör fyrir síðasta ár var kynnt. Þar var niðurstaðan tap upp á rúmlega 6 milljarða, fyrir skatt. Samhliða útgáfu uppgjörsins var boðað til hlutafjáraukningar en ekki liggur fyrir hvert gengið verður í útboðinu né hvort stærstu hluthafarnir ætli að taka þátt.