Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega.
Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru stærstu flugvellirnir í kringum Tókýó, Haneda og Narita. Í sjötta sæti er fyrsti fulltrúi Evrópu, Charles de Gaulle í París.
Aðeins flugvellir í Asíu og Evrópu eru á topp 10 listanum en sá bandaríski sem kemst hæst er Tacoma í Seattle sem er í 24. sæti.
Af norrænu flugstöðvunum þá fær sú við Vantaa í Helsinki bestu dómana og endar í 14. sæti en þar á eftir er Kastrup í Kaupmannahöfn í 20. sæti.
Keflavíkurflugvöllur er ekki á lista Skytrax yfir 100 bestu flugvelli heims en var í 93. sæti í fyrra og 99. sæti árið 2022.
Bestu flugvellir heims árið 2024 skv. Skytrax
- Hamad International í Katar
- Changi í Singapúr
- Incheon í Seoul
- Narata í Tókýó
- Hanada í Tókýó
- CDG í París
- Alþjóðaflugvöllurinn í Dúbaí
- Munchen flugvöllur
- Zurich flugvöllur
- Istanbúl flugvöllur