Stefnt er að því að á hótelinu verði veitingastaður, ráðstefnu- og veislusalur ásamt heilsulind. Síðan er ætlunin að stækka Skógarböðin og tengja þau hótelinu. Samkvæmt fréttatilkynningu er um að ræða fimm milljarða króna fjárfestingu. Áætlað er að hótelið verði opnað eftir tvö ár, vorið 2026.
„Þetta er virkilega spennandi verkefni sem við hjá Íslandshótelum hlökkum mikið til að takast á við og bjóða upp á úrvalsgistingu í því fagra umhverfi sem umlykur Skógarböðin,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í tilkynningunni.
![](https://ff7.is/wp-content/uploads/2024/04/2024.18.03_bak-lounge.jpg)
Við arineld á útisvæði – MYND: Íslandshótel
„Við erum afar spennt fyrir þessu verkefni og stórhuga draumar okkar um hótel tengt við Skógarböðin eru nú að rætast. Við viljum gera okkar til að byggja áfram upp ferðaþjónustu á Norðurlandi, enda getur hótel hér einnig stuðlað að bættum forsendum fyrir millilandaflugi til Akureyrar. Hótelið verður staðsett í jaðri skógarins í Vaðlareit og mun hafa einstakt útsýni yfir á Akureyri og inn og út Eyjafjörðinn, lengsta fjörð Íslands,“ er haft eftir Sigríði Maríu Hammer og Finni Aðalbjörnssyni, aðaleigendum Skógarbaðanna.
Basalt arkitektar hanna hótelið við Skógarböðin.