Það voru 980 nýir fólksbílar skráðir á bílaleigur í nýliðnum mánuði samanborið við 1.017 á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn nam því 3,6 prósentum í apríl en fyrstu þrjá mánuði þessa árs nam hann 69,4 prósentum. Þá komu aðeins 418 nýir bílar á götuna í eigu bílaleiga en höfðu verið 1.364 á fyrsta ársfjórðungi í fyrra.
Á því tímabili keyptu íslenskar bílaleigur reyndar óvenju marga nýja bíla líkt og Axel Gómez, forstjóri Avis, fór yfir á síðum FF7.
Fyrstu fjóra mánuðina í ár hafa bílaleigur landsins fengið afhenta 1.398 ný ökutæki samanborið við 2.381 á sama tímabili fyrir ári. Samdrátturinn nemur 41,3 prósenti samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins.