Gistináttagjald upp á 400 krónur (2,7 evrur) verður lagt á í Færeyjum frá og með október á næsta ári. Um leið verða allir þeir sem koma til eyjanna með skemmtiferðaskipum að greiða 1.300 króna gjald (9 evrur). Allar tekjur af þessari nýju gjaldtöku renna í sérstakan náttúruverndarsjóð að því segir í tilkynningu.
Sá sjóður verður svo nýttur til að fjármagna uppbyggingu og viðhald á gönguleiðum auk þess að styðja við sérstök verkefni á sviði ferðaþjónustu og náttúruverndar.
Hér á landi var gistináttaskattur lagður á að nýju um síðustu áramót og þá hækkaður úr 300 krónum í 600 kr. á á nótt og skemmtiferðaskip greiða 1.000 krónur á hverja káettu.