Samfélagsmiðlar

20 stærstu flugvellirnir í Evrópu

terminal2 heathrow

Engin evrópsk flughöfn kemst með tærnar þar sem Heathrow hefur hælanna, alla vega ekki þegar kemur að fjölda farþega. Engin evrópsk flughöfn kemst með tærnar þar sem Heathrow hefur hælanna, alla vega ekki þegar kemur að fjölda farþega. Tveir breskir flugvellir eru dottnir út af listi þeirra tuttugu stærstu og í staðinn hafa Tyrkir styrkt stöðu sína.
Í fyrra fóru ríflega 73 milljónir farþega um Heathrow flugvöllinn í London og er hann sá stærsti í Evrópu enn eitt árið. Ekki er útlit fyrir að nokkur flughöfn velti Heathrow úr sessi því farþegar þar voru um tíu milljónum fleiri en í Charles de Gaulle í París sem er næst stærsta flughöfn álfunnar. Í þriðja sæti er flugvöllurinn í Frankfurt í Þýskalandi en Icelandair flýgur að lágmarki daglega til þessara þriggja stærstu flugvalla Evrópu.

Tyrkir sækja í sig veðrið

Árið 2008 var aðal flugvöllurinn í höfuðborg Tyrklands sá eini þar í landi sem komst á lista yfir tuttugu fjölförnustu flugstöðvar Evrópu. Flugvöllurinn í Istanbúl var þá í tíunda sæti en endaði í því fjórða í fyrra. Tveir aðrir tyrkneskir flugvellir eru einnig komnir á topp tuttugu lista Airport Council International yfir stærstu flugvelli Evrópu. Á sama tíma og umferðin um tyrkneska flugvelli hefur aukist umtalsvert þá hafa vellirnir í Dublin, Manchester og við Stansted í London misst flugið. Alla vega hafa þeir ekki haldið í þá stærstu og hafa því allir þrír dottið út af lista þeirra stærstu síðustu ár.
Flugvellirnir í Kaupmannahöfn og Ósló eru einu fulltrúar Norðurlanda á lista ACI og voru farþegar þar um 25 milljónir í fyrra. Til samanburðar fóru tæplega 3,9 milljónir farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á síðasta ári.

Stærstu flughafnir Evrópu í farþegum talið:

 
 FlugvöllurLandFarþegafjöldi 2014
1.Heathrow í LondonBretland73,4 milljónir
2.Charles De Gaulle í ParísFrakkland63,6 milljónir
3.Frankfurt Þýskaland59,6 milljónir
4.Ataturk í IstanbúlTyrkland56,8 milljónir
5.Schiphol í AmsterdamHolland55 milljónir
6.Barajas í MadrídSpánn41,8 milljónir
7.MunchenÞýskaland39,7 milljónir
8.Fiumicino í RómÍtalía38,5 milljónir
9.Gatwick í LondonBretland38,1 milljónir
10.El Prat í BarcelonaSpánn37,5 milljónir
11.Domodedovo í MoskvuRússland33 milljónir
12.Sheremetyevo í MoskvuRússland31,6 milljónir
13.Orly í ParísFrakkland28,9 milljónir
14.AntalyaTyrkland28,4 milljónir
15.KaupmannahöfnDanmörk25,6 milljónir
16.Zurich Sviss25,4 milljónir
17.ÓslóNoregur24,1 milljónir
18.Sabiha Gökçen í IstanbúlTyrkland23,6 milljónir
19.Palma de MallorcaSpánn23,1 milljónir
20.VínarborgAusturríki22,5 milljónir
Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …