Samfélagsmiðlar

Jóhannes Þór ráðinn til Samtaka ferðaþjónustunnar

Frá Miðflokknum í framkvæmdastjórastöðu SAF.

Jóhannes Þór Skúlason nýr framkvæmdastjóri SAF.

Jóhannes Þór Skúlason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Jóhannes Þór var valinn úr hópi 41 umsækjanda um starfið. Jóhannes Þór er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands auk þess að vera með kennsluréttindi frá sama skóla.

Undanfarið hefur hann starfað sem aðstoðarmaður formanns Miðflokksins ásamt því að hafa umtalsverða reynslu úr stjórnmálum og stjórnsýslu á umliðnum árum, m.a. sem aðstoðarmaður forsætisráðherra. Þá hefur Jóhannes Þór starfað sem grunnskólakennari og almannatengslaráðgjafi ásamt því að hafa verið talsmaður InDefence hópsins.

„Samtök ferðaþjónustunnar bjóða Jóhannes Þór velkominn til starfa. Það er akkur fyrir okkur að fá jafn öflugan einstakling og Jóhannes Þór til að leiða það kraftmikla starf sem unnið er á skrifstofu SAF og á vettvangi samtakanna. Jóhannes Þór býr yfir mikilli reynslu í því að gæta hagsmuna brýnna málefna og væntum við mikils af hans störfum fyrir þá mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er fyrir íslenskt samfélag,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

„Ég hlakka til að takast á við nýjar og spennandi áskoranir á vettvangi ferðaþjónustunnar. Ég hef fylgst með starfsemi SAF á undanförnum árum og veit að samtökin eru öflugur málsvari fyrir atvinnugreinina. Á næstu misserum liggur fyrir að takast þarf á við flókin úrlausnarefni sem snerta ferðaþjónustu á Íslandi. Ég er óhræddur við að takast á við krefjandi áskoranir og geng jákvæður og bjartsýnn til verka á vettvangi samtakanna,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, nýráðinn framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Jóhannes Þór hefur störf hjá SAF 10. júní næstkomandi. Hann tekur við af Helgu Árnadóttur
sem verið hefur framkvæmdastjóri samtakanna frá árinu 2013.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …