Samfélagsmiðlar

Ferðaþjónustan á Hveravöllum til sölu

Hveravallafélagið ehf. hefur sett starfsemi sína á söluskrá. Um er að ræða allar fasteignir, tækjabúnað, innviði og lóðarleigusamning til reksturs ferðaþjónustu á Hveravöllum.

Frá Hveravöllum.

Ferðaþjónustan á Hveravöllum er opin allan ársins hring og samkvæmt talningu Ferðamálastofu komu um 80 þúsund manns til Hveravalla árið 2016. Um 10 þúsund manns gista þar árlega í skálum, tjöldum og húsbílum. Hveravallafélagið hefur starfað áratugum saman á Hveravöllum og hafa eigendur þess varið um 100 milljónum króna í endurbætur húsa og búnaðar ásamt uppbyggingu innviða á borð við vatnsveitu og fráveitu í samstarfi við Umhverfisstofnun og fleiri aðila. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu þar sem greint er frá því að starfsemin er nú til sölu.

Það er ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line sem er stærsti eigandi Hveravallafélagsins en aðrir hluthafar eru Húnavatnshreppur og Björn Þór Kristjánsson. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að fara út úr ferðaþjónusturekstrinum og eigendur Gray Line hafa ákveðið að einbeita kröftum sínum að rekstri eigin félags samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu við Skíðaskálann í Hveradölum.

„Ferðaþjónustan á Hveravöllum skapar mikil tækifæri en er um leið krefjandi og kallar á óskipta athygli rekstraraðila. Framundan eru miklir möguleikar í uppbyggingu og vöruþróun á svæðinu. Við teljum því mikilvægt að starfsemin komist í hendur aðila sem geta sinnt henni nú og til framtíðar. Með því að láta Hveravallafélagið af hendi getum við betur einbeitt okkur að uppbyggingaráformum í Hveradölum,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Hveravallafélagsins.

Í tilkynningunni segir jafnframt að fjölgun ferðamanna kalli á bætta aðstöðu á Hveravöllum og fyrir liggi tillaga að byggingu nýrrar hálendismiðstöðvar í samræmi við landsskipulag. Bygging hálendismiðstöðvarinnar er fyrirhuguð utan friðlýsta hverasvæðisins til að stuðla að vernd þess og sjálfbærri þróun.

 

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …