Samfélagsmiðlar

Hefja fraktflug strax á morgun samkvæmt nýjum samningi

Breiðþotur Icelandair munu fljúga að minnsta kosti 45 ferðir með lækninga- og hjúkrunarvörur milli Kína og Evrópu.

Icelandair Group hefur gert samning við flutningamiðlunarfyrirtækið DB Schenker um að minnsta kosti 45 fraktflug á milli Shanghæ í Kína og Munchen í Þýskalandi með lækninga- og hjúkrunarvörur fyrir aðila í heilbrigðisþjónustu í Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu og þar segir að jafnframt verði nokkur flug frá Shanghæ til Chicago í Bandaríkjunum með viðkomu á Íslandi. Um er að ræða dagleg flug til Kína en fyrsta flugið fer frá Íslandi á morgun, laugardaginn 25. apríl.

„Þremur Boeing 767 breiðþotum Icelandair verður breytt tímabundið fyrir þetta verkefni. Boeing 767 vélarnar eru langdrægar og geta borið töluvert af frakt og henta því vel í verkefni sem þetta. Verkefnið er til komið vegna góðrar reynslu af samstarfi Icelandair Group og DB Schenker í tengslum við flutning á lækna- og hjúkrunarvörum til Íslands fyrir skemmstu,“ segir í tilkynningu.

Á annað hundrað starfsmanna Icelandair Group munu koma að verkefninu en hver áhöfn telur tólf manns og þá koma tugir annarra starfsmanna að  undirbúningi og skipulagningu. Auk þess fer breyting á flugvélunum fram hér á landi. Um er að ræða að lágmarki 45 ferðir en samkomulag er á milli aðila að halda uppi daglegu flugi til Kína og bæta við ferðum á meðan ástandið varir. Til viðbótar er félagið að ganga frá samningi um leigu á fjórðu Boeing 767 vélinni til annara aðila sem áforma einnig fraktflug milli Kína og Evrópu með samskonar varning.

„Það er ánægjulegt að hafa náð þessum mikilvæga samningi á þessum krefjandi tímum en alþjóðleg samkeppni um slík verkefni er mikil um þessar mundir. Það sýnir þá víðtæku sérþekkingu sem félagið býr yfir og útsjónarsemi starfsfólks sem oft kemur fram við erfiðar aðstæður. Þá búum við einnig yfir þeim sveigjanleika að geta brugðist hratt við og tekist á við verkefni sem þetta, með stuttum fyrirvara. Þarna sameinast reynsla okkar og þekking á fraktflutningum og skipulagningu leiguflugs, ásamt tengslaneti víða um heim. Einnig hafa sérfræðingar okkar í tæknideild Icelandair ráðist í það óvenjulega verkefni að endurhanna farþegarými vélanna til þess að hægt sé að flytja frakt í stað farþega. Þetta eru mikilvægar tekjur fyrir félagið af flugvélum sem annars hefðu setið á jörðinni án verkefna í ljósi þeirra aðstæðna sem ríkja í dag. Þá skapar þetta jafnframt verkefni fyrir fólkið okkar, en undirbúningur, skipulag og framkvæmd fer öll fram hér á landi, ásamt fluginu sjálfu, með okkar frábæra starfsfólki,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …