Samfélagsmiðlar

Litlar líkur á Íslandsflugi Westjet

Annað árið í röð er útlit fyrir að lendingarleyfi Westjet á Keflavíkurflugvelli verði ekki nýtt.

Kanadíska lágfargjaldaflugfélagið Westjet er með frátekin lendingarleyfi á Keflavíkurflugvelli fyrir næstu sumarvertíð. Bæði fyrir áætlunarferðir frá Toronto og Calgary.

Tveggja vikna sóttkví er hins vegar ennþá skilda í Kanada og aðeins íbúar landsins fá að fara inn fyrir landamærin.

Nú í ársbyrjun hafa stjórnendur Westjet hins vegar skorið niður stóran hluta af ferðum félagsins til útlanda þar sem landamærum Kanada verður áfram haldið lokuðum. Alla vega fyrir öllum öðrum en íbúum landsins og þeim sem eiga þangað áríðandi erindi.

Þar með má telja næsta víst að ekkert verður af Íslandsflugi Westjet í ár enda hafði félagið ekki ennþá hafið sölu á farmiðum til Íslands. Hvorki frá Calgary né Toronto. Þar með takmarkast ferðir héðan til Kanada áfram við áætlunarflug Air Canada og Icelandair.

Það fyrrnefnda áformar að hefja flugið hingað á ný í byrjun sumars á meðan flugáætlun Icelandair í dag gerir ráð fyrir ferðum til Toronto og Vancouver á ný þann 8. mars nk. Samkvæmt heimasíðu Icelandair verður flogið til Toronto á Boeing MAX9 þotu.

Bæði Westjet og Air Canada eru með þess háttar þotur í sínum flota og sumarið 2018 nýtti það síðarnefnda MAX þotur í Íslandsflug sitt.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …