Samfélagsmiðlar

Svisslendingar eyða langmestu og Bandaríkjamenn í 7.sæti

Það eru miklar sveiflur í kortanotkun eftir þjóðum þegar hún er sett í samhengi við fjölda ferðamanna frá viðkomandi landi.

Það hafa verið töluverðar sveiflur í erlendri greiðslukortaveltu hér á landi síðan ferðamannasumarið hófst. Í maí var velta á hvern og einn þannig töluvert meiri en hún hafði áður verið þegar upphæðinni var deilt niður á erlenda ferðamenn í þeim mánuði.

Meðaltalið var 388 þúsund krónur á hvern og einn sem var furðulega há tala. Sérstaklega þegar horft var til þess að útgjöld á gististöðum voru hlutfallslega minni en áður líkt og Túristi benti á.

Það er því ekki ólíklegt að það hafi að miklu leyti verið Íslendingar, búsettir í útlöndum og með erlend greiðslukort, sem voru svona eyðsluglaðir á landinu í maí.

Í júní og júlí lækkaði meðaleyðsla á hvern erlendan ferðamann um nærri því helming. Fór niður í rúmlega tvö hundrað þúsund krónur. Á sama tíma jukust útgjöldin í gistingu sem er vísbending um að fleiri ferðamenn hafi staðið undir kortaveltunni í stað burtfluttra Íslendinga.

Og þegar við skoðum veltuna eftir þjóðernum í júlí, en horfum aðeins til þjóða með fleiri en eitt þúsund ferðamenn, þá kemur í ljós að Svisslendingar eyddu að jafnaði langmestu. Meðalneyslan í júlí var 588 þúsund krónur á hvern og einn.

Í því samhengi er rétt að rifja upp að Íslendingar, búsettir í Sviss, en í ferðalagi á Íslandi gætu þarna haft verulega áhrif.

Á sama tíma má minna á að nú í júlí hófst Íslandsflug Edelweiss flugfélagsins og það kann að skýra hækkunin í kortaveltu Svisslendinga milli júní og júlí í ár að einhverju leyti. Hún hækkaði reyndar mjög mikið eða um 51 prósent eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Taflan sýnir líka hversu miklar sveiflur geta verið í eyðslu hverrar þjóðar milli mánaða þegar kortanotkuninni er deilt niður á fjölda ferðamanna frá viðkomandi landi.

Það er því í raun á mörkunum að þess háttar útreikningar gefi góða mynd af stöðu mála. Þetta segir okkur til að mynda fátt um eyðslu pólskra ferðamanna. Pólverjar búsettir á Íslandi eru nefnilega taldir sem pólskir farþegar á Keflavíkurflugvelli. Greiðslukortanotkunin er svo vafalítið mest öll með íslenskum kortum.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …