Samfélagsmiðlar

Keflavík/Reykjavík í tíunda sæti í Kaupmannahöfn

Flugvöllurinn við Kastrup í Kaupmannahöfn.

Flugmálayfirvöld hér á landi veita engar upplýsingar um fjölda farþega efir flugleiðum. Þess háttar gögn eru þó opinber í flestum löndum og þannig sýna nýjar tölur frá Kaupmannahöfn að 33.383 farþegar nýttu sér flugferðirnar milli Íslands og Kastrup í síðasta mánuði.

Það er aukning um 43 prósent frá ágúst í fyrra en þegar horft er til ársins 2019 þá nemur samdrátturinn 52 prósentum.

Og flugferðunum fækkaði hlutfallslega nærri jafnmikið því samkvæmt talningum Túrista þá voru farnar 404 ferðir milli Keflavíkurflugvallar og Kaupmannahafnar í ágúst 2019. Að þessu sinni voru þær 210.

Farþegafjöldinn í ágúst dugar til að tryggja Keflavíkurflugvelli eða „Keflavík/Reykjavík“ tíunda sætið á lista Kaupmannahafnarflugvallar yfir þá staði sem oftast var flogið til í ágúst.

Í fyrsta sæti á listanum er hins vegar Álaborg og svo kemur Stokkhólmur og Amsterdam er í þriðja sæti.

Palma á Mallorca er sú borg í suðurhluta álfunnar sem flestir flugu til frá dönsku höfuðborginni og þar á eftir Malaga. Hvorug þessara borga er hluti af úrvali íslenskra flugfélaga eða ferðaskrifstofa.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …