Samfélagsmiðlar

Stefnir í enn harðari baráttu íslensku félaganna í bandarísku höfuðborginni

washington hvitahusið David Everett Strickler

Icelandair gerir nú ráð fyrir enn fleiri ferðum á flugvellina í nágrenni við Hvíta húsið.

Um langt árabil voru þotur Icelandair fastagestir á Baltimore-Washington flugvellinum en í ársbyrjun 2008 voru ferðirnar þangað blásnar af. Þremur árum síðar tók Icelandair upp þráðinn í flugi til bandarísku höfuðborgarinnar en þá með áætlunarferðum til Washington Dulles flugvallar. Báðar þessar flughafnir eru álíka langt frá höfuðborg Bandaríkjanna.

Þegar Wow Air hóf flug vestur um haf sumarið 2015 þá varð Baltimore-Washington flugvöllur fyrir valinu. Félagið komst þar á gott skrið en svo mætti Icelandair á svæðið fyrir sumarvertíðina 2018. Félagið hafði þó ekki árangur sem erfiði og lagðir ferðirnar niður um haustið og lét Wow Air eftir Íslandsflugið frá Baltimore.

Nú eru þotur Icelandair hins vegar mættar enn á ný til Baltimore og þar með skorar félagið Play á hólm þar í borg en Play hefur flogið þangað daglega síðan í apríl. Upphaflega ætluðu stjórnendur Icelandair aðeins að fljúga til Baltimore fram á haust en nú er hægt að bóka flug með félaginu þangað í allan vetur.

Og það sem meira er þá hefur Icelandair sett í sölu daglegar ferðir til Baltimore frá og með byrjun júní á næsta ári. Til viðbótar við þessar ferðir þá reiknar Icelandair með tveimur brottförum á dag til Washington Dulles flugvallar. Þar með eykst framboð félagsins á ferðum til og frá bandaríska höfuðborgarsvæðinu þónokkuð næsta sumar. Og um leið harðnar samkeppnin við Play en ekki er útilokað að það félag bæti við ferðum til Baltimore.

Sumarið 2018 flaug Wow Air til að mynda tvisvar á dag til borgarinnar annan hvern dag.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …