Samfélagsmiðlar

Bjóða starfsfólki upp á íslenskunámskeið í vinnutíma

Hópur starfsmanna Isavia á íslenskunámskeiði.

Starfsfólk Isavia og dótturfélaga, sem hefur annað tungumál en íslensku að móðurmáli, getur nú sótt íslenskunámskeið í boði félagsins í vinnutíma. Námskeiðið er haldið af Isavia í samvinnu við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Einnig getur starfsfólk bókað sig í íslenskunám utan vinnutíma í boði Isavia kjósi það svo að því segir í tilkynningu.

Fyrsta námskeiðið hófst þann 11. október síðastliðinn og stendur í átta vikur. Í fyrsta námshópnum eru þrettán einstaklingar af fimm þjóðernum. Þetta starfsfólk kemur úr mismunandi deildum innan Isavia samstæðunnar.

„Hugmyndin af því að bjóða starfsfólki okkar upp á íslenskunám í vinnutíma kviknaði fyrir allnokkru síðan og hefur verkefnið verið í þróun,“ segir Gerður Pétursdóttir, fræðslustjóri hjá Isavia. „Það var svo snemma í haust að við náðum að hnýta alla enda og koma þessu af stað.“

Gerður segir að Isavia leggi áherslu á að efla færni starfsfólks á ýmsum sviðum. Félagið vilji gefa öllu starfsfólki tækifæri til að vaxa í starfi og um leið auka veg íslenskunnar með þessum áþreifanlega hætti. „Okkur finnst mikilvægt að geta boðið upp á þessa nýjung fyrir okkar fólk. Við teljum okkur vita að þetta komi að góðu gagni fyrir okkar hóp og vonandi samfélagið í heild.“

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …