Samfélagsmiðlar

Fá ekki fjárhagslegan stuðning frá Ísrael

Icelandair ætlar að hefja flug til Tel Aviv á næsta ári. Félagið fetar þar með í fótspor Wow Air en það voru helst farþegar með ísraelskt vegabréf sem nýttu sér ferðir þess félags á sínum tíma. Og þá mest til að fljúga til Norður-Ameríku.

Horft yfir Tel Aviv.

Síðustu tvær sumarvertíðir hafa tvö ísraelsk flugfélög haldið úti ferðum hingað til lands en þó eingöngu fyrir ísraelska ferðamenn. Næsta sumar geta hins vegar allir sem eiga leið milli Íslands og Ísrael flogið beint milli landanna tveggja með Icelandair því félagið áformar að hefja flug til Tel Aviv þann 10. maí á næsta ári. Í boði verða þrjár brottfarir í viku fram í lok október.

Þetta verður í fyrsta sinn í nærri fimm ár sem íslenskt flugfélag heldur úti áætlunarflugi til Ísrael en Wow Air spreytti sig á ferðum til Tel Aviv í eitt ár frá haustinu 2017. Félagið ráðgerði að taka upp þráðinn á ný sumarið 2019 en ekkert varð af því þar sem Wow Air varð gjaldþrota í mars það ár.

Þá ætluðu stjórnvöld í Ísrael að styðja við útgerð Wow Air með framlagi upp á nærri hálfa milljón evra. Sú upphæð jafngildir um 70 milljónum króna í dag en samkvæmt svari frá Icelandair þá fær félagið ekki styrki frá þarlendum yfirvöldum vegna ferðanna til Tel Aviv enda séu þeir aðeins veittir einu sinni fyrir hverja leið. Og þar sem áður hefur verið flogið frá Keflavík til Tel Aviv þá stóð styrkurinn ekki til boða nú.

Icelandair hefur heldur ekki tryggt sér samninga við ísraelskar ferðaskrifstofur um Íslandsferðir á næsta ári.

Ísraelar í meirihluta

Sem fyrr segir hélt Wow Air úti ferðum til Tel Aviv í eitt ár frá haustinu 2017 og á því tímabili flutti félagið nærri 18 þúsund farþega til og frá Tel Aviv. Þar af voru um 10 þúsund farþegar með ísraelskt vegabréf á meðan íslensku farþegarnir voru rétt um 2.600 samkvæmt tölum Wow Air.

Stór hluti erlendu farþeganna nýtti sér ferðir Wow Air til að komast milli Norður-Ameríku og Ísrael og millilenti því eingöngu hér á landi. Langflestir þessara tengifarþega voru á leið til og frá New York en einnig naut tengiflug Wow Air til Toronto og Washington svæðisins vinsælda hjá ísraelsku farþegunum.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …