Tveir af fimm stjórnarmönnum Icelandair hafa unnið að því síðustu tvö ár að koma á laggirnar bandarísku flugfélagi sem halda á úti áætlunarferðum frá Toronto í Kanada til nærliggjandi borga í Bandaríkjunum.
Flugfélagið kallast Connect Airlines og er í eigu John Thomas sem tók sæti í stjórn Icelandair snemma árs 2020. Þá var Nina Jonsson einnig valin í stjórnina en hún hefur aðstoðað Thomas við að koma Connect Airlines í loftið síðustu misseri.
Upphaflega var stefnt á jómfrúarferð haustið 2021 en ekkert varð af því og ennþá er ekki hægt að bóka miða á heimasíðu Connect Airlines. Fimm manna framkvæmdastjórn flugfélagsins er þó fyrir löngu fullskipuð en í henni sitja auk Thomas sjálfs fjórar karlar og eru þeir allir með áratugareynslu úr fluggeiranum.
Seinagangurinn skrifast því ólíklega á reynsluleysi stjórnenda en aftur á móti hefur skortur á flugmönnum sett strik í reikninginn. Connect Airlines auglýsti nefnilega eftir flugmönnum í sumar og lofaði þar kvartmilljón dollara í árstekjur. Sú upphæð jafngildir þremur milljónum íslenskra króna á mánuði.
„Að stofna nýtt flugfélag við þessar krefjandi markaðsaðstæður kallar á að við gerum hlutina öðruvísi en aðrir,” sagði Thomas, forstjóri Connect Airlines og stjórnarmaður Icelandair, í tilkynningu þegar atvinnutilboðið var kynnt.
Þrátt fyrir há laun, bæði íslenskan og bandarískan mælikvarða, þá er Connect Airlines ekki ennþá komið í loftið og blaðafulltrúi félagsins hefur ekki svarað spurningum Túrista um hvenær miðasala hefst á endanum.