Samfélagsmiðlar

Jákvæð áhrif erlends vinnuafls á flug og ferðamöguleika

Erlent vinnuafl ber uppi margvíslega atvinnustarfsemi á Íslandi eins og víðar. Kaupmannahafnarflugvöllur lét kanna hvaða áhrif útlendingar sem vinna í Danmörku hafa á starfsemina. Niðurstaðan er að erlent vinnuafl styrkir mjög flugstarfsemina. .

Í Danmörku búa um 220 þúsund útlendingar með fasta vinnu í landinu. Til viðbótar er svo auðvitað fjölmennur hópur fólks af erlendum uppruna í landinu, innflytjendur og afkomendur þeirra. Allt þetta fólk ræktar tengslin við heimahagana og það hefur áhrif á ferðaframboð í Danmörku.

Hér á Íslandi teljast rúmlega 16 prósent íbúa vera innflytjendur, eða rúm 61 þúsund manns, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Einstaklingar með erlendan bakgrunn sem búsettir eru á Íslandi, aðrir en innflytjendur, eru rúmlega sjö prósent af íbúafjölda landsins. Um 34 prósent innflytjenda á Íslandi eru Pólverjar. Ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægt framlag þeirra til íslensks atvinnulífs, m.a. í ferðaþjónustu. Það ættu allir að þekkja. Búseta Pólverja hér hefur líka orðið til þess að opna nýja ferðamöguleika fyrir alla Íslendinga – til Póllands og annarra landa – eins og kunnugt er.

Við Peblinge Sø í Kaupmannahöfn – MYND: ÓJ

Athugun Kaupmannahafnarflugvallar sýnir svart á hvítu að búseta og starf útlendinga í Danmörku hefur umtalsverð áhrif á vöxt og viðgang flugstarfseminnar. Fimmtung fjölgunar farþega sem fóru um Kaupmannahafnarflugvöll á árunum 2010 til 2019 má rekja til erlendra ríkisborgara sem búsettir eru í Danmörku. Þeim hefur fjölgað umtalsvert á liðnum árum – og flugfélögin taka mið af því með meira framboði. Alveg eins og á Íslandi hefur Pólverjum fjölgað mjög mikið í Danmörku á síðustu árum og um leið framboð á ferðum til Póllands. 

„Útlent vinnandi fólk og fjölskyldur þeirra skýra umtalsverðan hluta af farþegafjölguninni síðasta áratuginn, fjölgað áfangastöðum og ferðum til og frá landinu. Þetta hefur styrkt tengsl Danmerkur við umheiminn,” segir Thomas Thessen, yfirhagfræðingur Kaupmannahafnarflugvallar, í frétt frá flugvellinum. 

Hér á Íslandi starfa alþjóðleg fyrirtæki við rannsóknir og lyfjaframleiðslu sem stuðla að meiri flugumferð til og frá landinu. Í frétt Kaupmannahafnarflugvallar er lyfjafyrirtækið Novo Nordisk nefnt sérstaklega. Það framleiðir helming alls insúlíns sem notað er í heiminum. Hjá Novo Nordisk starfa um 3.500 manns af 40 þjóðernum í Kalundborg á Sjálandi. Meginforsenda velgengni Novo Nordisk er aðgangurinn að Kaupmannahafnarflugvelli. 

Thomas Thessen, yfirhagfræðingur, segir að í framtíðinni verði enn meiri þörf fyrir útlendinga á dönskum vinnumarkaði og rannsóknir sýni að Kaupmannahafnarflugvöllur sé mikilvæg forsenda þess að það takist að laða að þetta fólk. Danir muni síðan njóta góðs af meira sætaframboði og fleiri flugáfangastöðum. 

Kaupmannahafnarflugvöllur í Kastrup
Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …