Samfélagsmiðlar

Farþegum býðst að innrita farangur sinn kvöldið fyrir flug

Farþegar sem ætla í flug með Icelandair geta kvöldið áður innritað farangur sinn á Keflavíkurflugvelli. Að auki hefur Icelandair hafið samstarf við Öryggismiðstöðina sem getur sótt farangur heim til farþega og annast innritun á honum gegn gjaldi.

Leifsstöð, brottfararsalur

Annir í brottfararsal Keflavíkurflugvallar

Nú er unnið að því að stækka og endurbæta farangurskerfið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Liður í því eru breytingar á farangursfæriböndum í brottfararsalnum. Vinna mun standa fram í apríl og geta farþegar búist við töfum við innritun farangurs. Icelandair bregst við þessu með því að bjóða farþegum sínum að aka suður á flugvöll kvöldið fyrir brottför og innrita farangur sinn til að létta á afgreiðslunni morguninn eftir. Þessi þjónusta verður í boði milli klukkan 19 og 22.

Farþegar undirbúa brottför – MYND: ÓJ

Segir félagið í tilkynningu að þetta geti hentað vel þeim farþegum sem eru á hraðferð eða þeim sem ferðast með mikinn farangur. Farþegar geti svo við komuna á völlinn daginn eftir farið beint í öryggisleit. Farþegar þurfa að innrita farangur sinn í eigin persónu og hafa með sér vegabréf.

„Við erum alltaf að leita leiða til að auka þjónustuframboð okkar og við viljum leggja okkur fram um að draga úr áhrifum sem framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli hafa á farþega,“ er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra markaðsmála og þjónustu Icelandair.

Sjálfsinnritunarstöðvar í brottfararsal – MYND: ÓJ

Fyrir þá sem eru ekki tilbúnir í ökuferð til Keflavíkur kvöldið fyrir flug geta nýtt sér þjónustu Öryggismiðstöðvarinnar, sem sækir farangur heim til fólks og annast innritun á honum. Þessi þjónusta er í boði fyrir þá farþega Icelandair á höfuðborgarsvæðinu sem hafa innritað sig rafrænt. Samkvæmt upplýsingum á vefnum bagdrop.is er gjaldið fyrir eina tösku 7.390 krónur en 8.710 krónur fyrir tvær töskur.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …