Play gerir ráð fyrir miklum áhuga ferðalanga á Norður-Ítalíu í sumar. Haldið verður áfram áætlunarflugi til Bologna, sem naut vinsælda sem áfangastaður í fyrrasumar, og nú bætast Feneyjar við, einn þekktasta vinsælasta ferðamannaborg heims.
„Það er virkilega ánægjulegt að geta stækkað við okkur á Ítalíu. Þetta land nýtur svo
mikilla vinsælda meðal Íslendinga og þess vegna finnst okkur mikilvægt að auka
framboðið til Ítalíu og þar með samkeppnina sem verður alltaf til þess að flugmiðaverðið
lækkar neytendum til hagsbóta,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, í fréttatilkynningu.
Um 19 milljónir ferðamanna komu í dagsferðir til Feneyja árið 2019 – áður en kórónaveirufaraldurinn hófst. Nú í byrjun árs 2023 hófst gjaldtaka af gestum sem ekki hyggjast gista í borginni. Er þeirri ráðstöfun aðallega beint að skemmtiferðaskipunum sem koma hvert af öðru til borgarinnar með gesti sem lítið skilja eftir. Markmiðið er að verja þessa einstöku borg og afla fjár til viðhalds.
Um 5,7 milljónir ferðamanna gisti í Feneyjum í eina nótt eða lengur árið 2021.
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2023/02/fabio-mangione-fs1B0RX4j1o-unsplash-1200x800.jpeg.webp)