Samfélagsmiðlar

Keflavíkurflugvöllur í mínus en Fríhöfnin í plús

Afkoma dótturfélaga Isavia var ólík í fyrra.

Keflavíkurflugvöllur

Icelandair og Play eru langumsvifamestu flugfélögin á Keflavíkurflugvelli.

Tekjur Isavia samstæðunnar námu 15,7 milljörðum í fyrra sem var aukning um 75 prósent frá árinu á undan. Rekstrarafkoman var jákvæð um 5,2 milljörðum króna í fyrra samanborið við 810 milljón króna tap árið 2021. Þegar afskriftir, fjármagnsliðir og skattar eru teknir með inn í dæmið þá var Isavia hins vegar gert upp með 809 milljón króna tapi á síðasta ári.

Hjá dótturfélögunum var tapið mest hjá Keflavíkurflugvelli eða 1,5 milljarður króna. Aftur á móti af afkoman best hjá Fríhöfninni sem skilaði hagnaði upp á 856 milljónir kr.

Isavia ANS sem sinnir flugleiðsögu í innanlandsflugi á Íslandi og á flugstjórnarsvæði yfir Norður-Atlantshafinu hagnaðist um 100 milljón króna en tapið af innanlandsflugvöllunum nam 273 milljónum.

„Árið 2022 markaði þann viðsnúning sem beðið var eftir að loknu tveggja ára óvissutímabili heimsfaraldurs. Ísland er sem fyrr einstakur áfangastaður og tengistöðin áfram lykillinn að flugtengingum sem styðja við lífsgæði og velsæld á Íslandi,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningu.

Þar bendir Sveinbjörn á að nú í vetur hafi verið 12 prósent meira sætaframboð til og frá Keflavíkurflugvelli en síðasta vetur fyrir heimsfaraldurinn.

„Á flugvöllunum í Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi og Helsinki, sem við berum okkur gjarnan saman við, hafi verið 8-25% minna sætaframboð,“ bætir forstjórinn við.

Ef horft er til ársins 2018, sem var metár á Keflavíkurflugvelli, þá nam samdrátturinn í fjölda farþega í fyrra 37 prósentum. Í ár er gert ráð fyrir að farþegarnir verði 7,8 milljónir.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …