Samfélagsmiðlar

Aðstaða fyrir innanlandsflug ekki á teikniborðinu

Stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru í fullum gangi. Þær viðbætur aðeins að millilandaflugi.

Á alþjóðaflugvöllum í löndunum í kringum okkur er innanlandsflug ávallt hluti af starfseminni. Hér á landi snýst rekstur Keflavíkurflugvallar eingöngu um millilandaflug. Íbúar út á landi hafa því ekki kost á því að fljúga úr heimabyggð til eina flugvallarins með reglulegt alþjóðaflug.

Ferðamenn sem vilja fljúga út á land við komuna til Íslands verða á sama hátt að sækja farangurinn í Leifsstöð, koma sér til Reykjavíkur og innrita sig þar í flug á ný. Engar beinar sætaferðir eru í boði milli flugvallanna tveggja en með Flugrútunni má komast alla leið með viðkomu á BSÍ.

Kannanir Ferðamálastofu sýna að mjög lágt hlutfall ferðamanna flýgur innanlands eða rétt um tveir af hverjum 100 ferðamönnum. Gera má ráð fyrir að fyrrnefnt fyrirkomulag dragi úr mörgum.

Nú í haust ætlar Icelandair að reyna á ný að halda úti flugi frá Akureyri til Keflavíkurflugvallar en aðeins í sex vikur. Þessar ferðir eru ekki hefðbundið innanlandsflug enda eingöngu í boði fyrir þá semeru á leið í eða úr millilandaflugi. Íbúar í Reykjanesbæ geta því ekki keyrt í Leifsstöð og flogið þaðan til Akureyrar heldur verða þeir að nýta flugið frá Reykjavík.

Guðmundur Daði Rúnarsson
Guðmundur Daði Rúnarsson. Mynd: ÓJ

Spurður hvort uppbygging Keflavíkurflugvallar miðist við hefðbundið innanlandsflug að einhverju leyti og hvort hægt væri að hefja þess háttar starfsemi þá bendir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia, að ekki séu uppi áform um innanlandsflug á Keflavíkurflugvelli. „En ef ósk kæmi um það myndum við leggjast yfir það verkefni og fara yfir með hvaða hætti yrði hægt að gera það.“

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …