Samfélagsmiðlar

Farið verði í saumana á hækkun fargjalda

„Helsta þolraun evrópskra flugvalla felst í því að aðskilja fjárhagslegan veruleika vaxandi umferð. Þetta snýst ekki bara um að þrauka heldur tryggja festu til framtíðar," sagði Olivier Jankovic, forstjóri ACI Europe, á ársfundi samtakanna í Barselóna í gær.

Á Malpensa-flugvelli í Mílanó

Ársfundur Evrópudeildar Alþjóðaráðs flugvalla, ACI, er haldinn á óvissutímum í flugheiminum. Verð á fargjöldum hefur hækkað mikið vegna ferðavilja almennings og skorts á flugvélum til að anna eftirspurninni. Þetta hefur gerst þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífi.

Framkvæmdastjóri ACI Europe, Olivier Jankovic, segir að stjórnvöld í Evrópulöndum ættu að rannsaka þá 30 prósenta hækkun sem orðið hefði á verði flugmiða – kanna hvort verið væri að misnota verðákvörðunarvald. Flugvellirnir sjálfir vilja nefnilega stærri skerf af söluandvirði flugmiða.

Olivier Jankovic, framkvæmdastjóri ACI-Europe – MYND: ACI-Europe

Jankovic bendir á að ekki dugi fyrir flugvellina að einblína á vöxt heldur þurfi að tryggja raunverulegan viðgang þeirra. Viðsnúningur varð í rekstri flugvalla á síðasta ári eftir hrunið sem fylgdi Covid-19. Enn vantar þó töluvert upp á að búið sé að endurheimta umferðartölurnar frá því fyrir faraldurinn – og áfram ríkir töluverð óvissa um afkomuna vegna hækkandi kostnaðar af innviðum og óvissu um fastar tekjur. Skuldir eru miklar og verðlag hækkar áfram. 

Á Keflavíkurflugvelli – MYND: ÓJ

Vöxturinn sem nú blasir við í flugumferð tryggir því ekki endilega sjálfbæran rekstur flugvallanna. „Það sem er í húfi fyrir flugvellina er að geta fjárfest í leiðum til að draga úr kolefnislosun, í þróun stafrænnar tækni og hæfni til að veita góða þjónustu,“ er haft eftir Jankovic í frétt frá ACI-Europe og bent á að eina leiðin væri að láta notendur borga. Stjórnvöld hvarvetna þyrftu að átta sig á því að kostnaður af nauðsynlegum fjárfestingum yrði að endurspeglast í flugvallargjöldum. 

Schiphol-flugvöllur við Amsterdam – MYND: ÓJ

Á sama tíma og flugvellirnir þurfa meiri tekjur af hverjum farþega þá hækkar verð flugmiða án þess að verið sé að auka framlög til þeirra. Olivier Jankovic bendir á það í viðtali við Financial Times að á sama tíma og hömlur væru settar á hækkun flugvallargjalda hefðu flugfélögin frítt spil til hækkana. Hann vill að farið verði í saumana á því hvað sé að baki þeim. Jankovic segir flugfélögin kveina og kvarta undan lendingargjöldum, sem þau velta síðan yfir á farþegana. Verðlagningarvaldið væri þeirra. 

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …