Þegar páskarnir eru í apríl þá er flug til útlanda vanalega mun dýrari í þeim mánuði en mánuðina á undan. Verðið lækkar svo aftur í maí en hækkar í júní.
Svona er takturinn samkvæmt verðlagsmælingum Hagstofunnar síðustu ár. Það er hins vegar allur gangur á því hvort fargjöldin eru hærri í apríl eða júní.
Árin 2017 og 2018 voru flugmiðarnir dýrari í júní en þeir höfðu verið í lok vetrar en þetta snérist við árið 2019. Þá hækkuðu fargjöldin verulega í apríl, í kjölfar gjaldþrots Wow Air, en voru svo 2,9 prósentum lægri í júní en þau höfðu verið tveimur mánuðum áður.
Í fyrra var staðan sú sama, farmiðarnir í júní voru 2,8 prósentum ódýrari en í apríl.
Núna er bilið ennþá breiðara því samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar þá var farmiðaverðið nú í júní 4,5% ódýrara en það hafði verið í apríl. Icelandair og Play standa undir bróðurparti umferðarinnar frá Keflavíkurflugvelli og því má gera ráð fyrir að Hagstofan horfi fyrst og fremst til fargjalda þessara tveggja félaga þegar verðlagsþróunin er mæld.