Verðbólgan í þeim löndum sem nota evru mælist nú 4,3 prósent samkvæmt tölum sem Eurostat birti í morgun. Svo lág hefur verðbólgan ekki mælst á evrusvæðinu síðan í október 2021 og skrifast þróunin helst á almennar verðlagslækkanir og hagstæðara orkuverð.
Sérfræðingur sem DN í Noregi ræðir við segir að með þessu dragi úr líkunum á að Seðlabanki Evrópu hækki vexti. Toppnum hafi mögulega nú þegar verið náð.
Hér á landi mælist tólf mánaða verðbólga 8 prósent.