Bandaríska flugfélagið United Airlines hélt úti áætlunarflugi hingað frá Newark flugvelli við New York nokkur sumar en hætti við þessa útgerð fyrir nýliðna sumarvertíð. Félagið hélt þó uppteknum hætti í flugi hingað frá Chicago.
Nú liggur fyrir að þotur United munu fljúga hingað frá báðum þessum borgum næsta sumar að því segir í tilkynningu á sumaráætlun United. Fyrsta flugið er á dagskrá 23. maí.
Þar með verða á ný fjögur flugfélög með daglegt áætlunarflug milli Keflavíkurflugvallar og New York en Bandaríkjamenn eru langfjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi.