Samfélagsmiðlar

Hlutfall nýrra rafbíla aldrei verið hærra en samt nokkru lægra en í Noregi

Á sama tíma og hlutfall rafbíla eykst hér á landi og í Noregi þá stefnir í aðra þróun í Svíþjóð.

616 rafbílar voru skráðir í síðasta mánuði.

Á íslenska bílamarkaðnum er bílaleigur stórtækar en þegar aðeins er horft til bílasölu til einstaklinga þá voru 760 ökutæki skráð ný á götuna í september. Af þessum fjölda voru hreinir rafbílar 616 talsins eða 81 prósent af heildinni. Hlutfallið hefur ekki áður verið þetta hátt í einum mánuði samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu.

Það sem af er ári þá hafa 5.356 nýir bílar verið skráðir á einstaklinga hér á landi og 71 prósent þeirra eru eingöngu knúnir rafmagni.

Hlutfallið er töluvert hærra í Noregi eða 83 prósent en í nýliðnum september fór vægi nýrra rafbíla upp í 87 prósent þar í landi og hefur það aldrei áður mælst þetta hátt. Fjórði hver rafbíll sem skráður var í Noregi í síðasta mánuði var af gerðinni Tesla og í nærri öllum tilvikum var um að ræða Y-módel bílategundarinnar.

Í heildina voru 10.342 nýir bílar skráðir í Noregi í september sem er samdráttur um 29 prósent frá sama tíma í fyrra. Í Svíþjóð var þróunin allt önnur.

Þar fjölgaði nýskráðum ökutækjum um 28 prósent í síðasta mánuði sem mun skrifast á þá ákvörðun stjórnvalda að hætta að niðurgreiða rafbíla um síðustu áramót samkvæmt frétt Svenska dagbladet. Þá stukku ófáir til og pöntuðu sér nýjan rafbíla sem fyrst núna er verið að afhenda. Sala á rafknúnum bílum í Svíþjóð hefur hins vegar minnkað eftir að opinberu álögurnar hækkuðu.

„Tölurnar í ár sýna að kaup á rafbílum hafa dregist meira saman en á öðrum tegundum. Sala á bensín og díselbílum er næstum á pari við síðasta ár. Til að snúa þessari þróun við og styðja við rafvæðingu bílaflotans þá þarf ríkisstjórnin að beita sér fyrir aðgerðum sem snúa að einstaklingum,“ segir framkvæmdastjóri sænska bílgreinasambandsins í tilkynningu.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …