Þó ferðagleði Íslendinga hafi verið mikil á árunum fyrir efnahagshrunið 2008 þá flugu samt aldrei fleiri en 55 þúsund Íslendingar til útlanda í einum mánuði. Það var í júní árið 2007. Það liðu svo 107 mánuðir þangað til að fjöldi íslenskra brottfararfarþega fór næst yfir fimmtíu þúsund.
Þá var metið bætt umtalsvert því í júní 2016 flugu 67 þúsund Íslendingar frá Keflavíkurflugvelli. Langflestir á leið til Frakklands að fylgjast með Evrópumótinu í knattspyrnu karla þar sem Íslendingar tóku þátt í fyrsta sinn.
Þetta met stóð í tvö ár því þegar karlalandsliðið tók þátt í heimsmeistaramótinu í Rússlandi, í júní 2018, flugu héðan rúmlega 71 þúsund Íslendingar. Þetta met var skiljanlega ekki bætt í heimsfaraldrinum en í október í fyrra var það naumlega slegið þegar taldir voru 71.536 íslenskir farþegar í Leifsstöð.
Það met stendur ennþá þó það hafi reyndar verið í hættu í júlí síðastliðnum eins og sjá má hér fyrir neðan.
Í ágúst og september dróg verulega úr utanferðum Íslendingar sem gæti skrifast á hækkandi verðlag og vexti. Ekki hefur ástandið batnað og því má telja ósennilegt að þessa dagana streymi Íslendingar út í heim með sama hætti og fyrir ári síðan.