Ekki hefur enn komið fram hvernig aukin gjaldheimta verður útfærð nema að hún miðist við stærð og þyngd ökutækis – og aflgjafa. Það felur væntanlega í sér að stórir rafbílar sleppi við hærra gjald.
Sportjeppum (SUV) hefur fjölgað um 60 prósent í París á síðustu fjórum árum og hafa þeir á sama tíma farið stækkandi og nýta 15 prósent allra bílastæða í borginni á kvöldin. Borgarstjórn Parísar er einhuga um að bregðast við, hvetja eigendur sportjeppanna til að skipta yfir í smábíl, draga úr mengun og nýta rými betur.
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2023/11/Umferdarmynd-fra-Paris-1067x800.jpeg)
Bílum af ýmsum stærðum lagt við gangstétt í París – MYND: ÓJ
David Belliard, varaborgarstjóri, er ábyrgur fyrir málum sem varða umferð og nýtingu almannarýmis í París. Hann segir að sportjeppar eigi ekki heima í borgarumhverfi, þar sem ekki sé að finna foruga fjallavegi. Sportjeppar komi ekki að neinum notum í miðborg Parísar, heldur séu þeir þvert á móti hættulegir, óþjálir – og það fari of mikil hráefni í að framleiða þá.
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2023/11/David_Belliard_en_2021_-_velo_-_avenue_de_la_Republique.jpg)
David Belliard, varaborgarstjóri Parísar – MYND: Wikipedia
Talsmenn bílaeigenda malda í móinn, segja að sportjepparnir nýtist fjölskyldufólki vel til ferðalaga og afþreyingar um helgar. Sportjeppaeigendur séu fáir í samanburði við alla hina sem aki um götur Parísar en hafi verið valdir sem einkennistákn í baráttunni gegn loftslagsmengun.