Verð á Norðursjávarolíu fór undir 80 dollara markið í gær í fyrsta sinn síðan um miðjan júlí. Verðið hefur þá lækkað um 14 prósent síðustu þrjár vikur sem er til marks um að átök fyrir botni Miðjarðarhafs hafi ekki lengur áhrif á olíuverðið að því segir í mati norska DNB bankans. Nú horfi markaðurinn frekar til minnkandi eftirspurnar og versnandi efnahagsástands á heimsvísu.
Verðbreytingar á þotueldsneyti eru ekki alltaf í takt við sveiflur á olíuverði en það hefur líka lækkað umtalsvert. Núna kostar tonn af þotueldsneyti 897 dollara en þegar verðið fór yfir 1000 dollara, í byrjun september, birtu stjórnendur Icelandair og Play spár um versnandi afkomu.
Flugfélögin hafa gert samninga um kaup á eldsneyti fram í tímann og verðið í þeim samningum er nokkru lægra en greiða þarf á markaðnum í dag eins og sjá má.