Í lítrum talið þá dróst sala á jólabjór saman um 8 prósent í ár í samanburði við það síðasta. Þá líkt og nú var jólabjór frá Tuborg sá langvinsælasti en salan á þeirri tegunda minnkaði þó töluvert eða um 13 af hundraði á milli ára. Sú tegund sem jók vinsældir sína mest var Gull Lite Jól White Ale eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan.
Níu vinsælustu tegundirnar eru annað hvort frá Ölgerðinni eða Víking brugghúsi en í tíunda sæti er Jóla Bryggj frá Færeyjum. Í ellefta sæti var Jóla-Kaldi.
Með fleiri áskrifendum verður FF7 ennþá betri. Smelltu hér til að kaupa áskrift